Frétt

31.05.2010 13:38

Nýir valmöguleikar til fjárfestingar í ríkisskuldabréfum

Landsvaki hf. hefur sett á stofn tvo nýja verðbréfasjóði sem fjárfesta  í skuldabréfum og öðrum kröfum með ábyrgð íslenska ríkisins. Sjóðirnir Sparibréf verðtryggð og Sparibréf óverðtryggð eru viðbót við framboð félagsins á ríkisskuldabréfasjóðum. Þeir hafa sömu fjárfestingarstefnu og Sparibréf stutt, meðallöng og löng, 90-100% í ríkisskuldabréfum og 0-10% í innlánum fjármálafyrirtækja. Skuldaraáhætta takmarkast því við íslenska ríkið og innlánastofnanir.

Sparibréf verðtryggð hafa einungis heimild til fjárfestingar í verðtryggðum kröfum með ábyrgð íslenska ríkisins.

Sparibréf óverðtryggð hafa einungis heimild til fjárfestingar í óverðtryggðum kröfum með ábyrgð íslenska ríkisins.

Sjóðstjóri hefur frjálsar hendur með meðallíftíma sjóðanna.

Til baka

Fréttasafn

Nánar um Landsvaka

  • Landsvaki hf.
  • Hafnarstræti 5
  • 155 Reykjavík

Hafðu samband