Frétt
Tilboð um engan mun á kaup- og sölugengi sjóða framlengt til 1. september 2010
Landsbankinn hefur framlengt tilboð sitt um engan mun á kaup- og sölugengi í verðbréfa- og hlutabréfasjóðum Landsvaka til 1. september 2010.
Skuldabréfasjóðir Landsvaka
Landsvaki býður upp á úrval skuldabréfasjóða sem henta vel til reglubundins sparnaðar. Einfalt er að kaupa og selja í sjóðunum og njóta viðskiptavinir þess að enginn munur er á kaup- og sölugengi í áskrift. Sjóðirnir hafa á síðustu mánuðum skilað betri ávöxtun en almennir innlánsreikningar.
Skuldabréfasjóðir fjárfesta aðallega í skuldabréfum útgefnum af aðilum sem fjármagna sig með útgáfu bréfanna (ríki, sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki). Tilgangur sjóðanna er að ávaxta fé sjóðfélaga og dreifa áhættu. Sjóðirnir kaupa skuldabréf á markaði samkvæmt skilgreindri fjárfestingastefnu og innheimta af þeim afborganir og vexti. Virði sjóðanna á hverjum tíma ræðst einnig af verðbreytingum á bréfunum þegar þau ganga kaupum og sölum á markaði. Styrkur hvers sjóðs ræðst af undirliggjandi eignum hans, það er fjárhagslegum styrk útgefenda þeirra skuldabréfa sem viðkomandi sjóður hefur fjárfest í.
Landsvaki býður upp á sex skuldabréfasjóði sem fjárfesta eingöngu í ríkistryggðum skuldabréfum og innlánum, Sparibréf löng, Sparibréf meðallöng, Sparibréf stutt, Sparibréf verðtryggð, Sparibréf óverðtryggð og Reiðubréf ríkistryggð. Sjóðirnir hafa allir sömu fjárfestingarstefnu en mislangan meðallíftíma.
Landsvaki rekur einnig þrjá blandaða skuldabréfasjóði, Markaðsbréf löng, Markaðsbréf meðallöng og Markaðsbréf stutt. Um er að ræða sjóði sem fjárfesta að lágmarki 60% í verðbréfum útgefnum af íslenska ríkinu en einnig í skuldabréfum útgefnum af sveitarfélögum, fjármálastofnunum og öðrum fyrirtækjum. Sjóðirnir hafa allir sömu fjárfestingarstefnu en mislangan meðallíftíma.
Hlutabréfasjóðir Landsvaka
Hlutabréfasjóðir fjárfesta fyrst og fremst í hlutabréfum á markaði samkvæmt fyrirfram kunngerðri fjárfestingastefnu og fá greiddan af þeim arð eftir atvikum. Ávöxtun sjóðsins á hverjum tíma ræðst af arðgreiðslum og af verðhækkunum á eignum sjóðsins. Styrkur hvers sjóðs ræðst af undirliggjandi eignum hans, fjárhagslegum styrk útgefenda þeirra verðbréfa sem sjóðurinn hefur fjárfest í og þeim fjölmörgu þáttum sem áhrif geta haft á verð hlutabréfa.
Landsvaki rekur þrjá hlutabréfasjóði. Annars vegar er um að ræða vísitölusjóðinn Nordic 40 sem líkir eftir hlutabréfavísitölunni Nordic 40 og gerir fjárfestum þannig kleift ná meðalávöxtun þeirra hlutabréfa sem mynda viðkomandi vísitölu að frádregnum kostnaði.
Hins vegar er um ræða hlutabréfasjóði með virkri stýringu þar sem sjóðstjóri velur eignir inn í sjóðinn innan ramma fjárfestingastefnu hans. Markmið slíkra sjóða er að ná betri ávöxtun en viðmið. Sjóðir Landsvaka með virkri stýringu eru Úrvalsbréf, sem fjárfestir í hlutabréfum skráðum í Kauphöll Íslands og Global Equity Fund sem fjárfestir aðallega í erlendum hlutabréfasjóðum og í kauphallarsjóðum (ETF).
Enginn munur er á kaup- og sölugengi sjóða fram til 1. september 2010.
Nánari upplýsingar um sjóðina má finna í útboðslýsingum þeirra og hjá Fjármálaráðgjöf Landsbankans í síma 410 4040. Fjárfestum er bent á að kynna sér vel útboðslýsingar sjóða áður en fjárfest er í þeim en þar er meðal annars að finna ítarlega umfjöllun um þá áhættu sem fylgir í fjárfestingu í hlutdeildarskírteinum verðbréfasjóða.
Til baka
Fréttasafn
- 16.01.2012 13:15Eignabréf - nýr fjárfestingarsjóður
- 11.01.2012 10:34Landsvaki með sjóð ársins - Sparibréf verðtryggð með 16,3% ávöxtun á árinu 2011
- 20.12.2011 16:08Jólakveðja frá starfsfólki Landsvaka
- 09.12.2011 14:34Jákvæður dómur fyrir Landsvaka í Hæstarétti
- 30.11.2011 16:36Tveir hagstæðir dómar fyrir Landsvaka
- 09.11.2011 10:36Útgreiðsla úr Fyrirtækjabréfum frestast til 10. janúar 2012
- 25.08.2011 16:07Árshlutareikningur Landsvaka hf. fyrir fyrri helming ársins 2011
- 21.06.2011 11:02Niðurstöður Aðalfundar