Frétt
Jákvæður dómur fyrir Landsvaka í Hæstarétti
Þann 8. desember sl. staðfesti Hæstiréttur dóm héraðsdóms frá 6. janúar 2011, þar sem Landsvaki hafði verið sýknaður af 7,5 milljóna kröfu viðskiptavinar um skaðabætur vegna rýrnunar inneignar í fjárfestingarsjóðnum Peningabréfum Landsbankans.
Á sunnudegi, 5. október 2008, óskaði viðskiptavinur eftir innlausn allra hlutdeildarskírteina sinna í sjóðnum, en sjóðurinn var opinn til klukkan 15.30 föstudaginn 3. október. Að morgni mánudagsins 6. október 2008 tók stjórn Landsvaka ákvörðun um að fresta innlausnum í sjóðnum vegna sérstakra aðstæðna á markaði. Viðskiptavinurinn byggði málatilbúnað sinn á því að hann hefði gefið fyrirmæli um innlausn hlutdeildarskírteinanna áður en ákvörðun stjórnar Landsvaka um að fresta innlausn varð bindandi. Taldi Hæstiréttur að gildistaka ákvörðunar um frestun innlausnar hlutdeildarskírteina væri ekki bundin undanfarandi kynningu. Þá var ekki talið að sá dráttur hafi orðið á að ákvörðunin væri tilkynnt Fjármálaeftirlitinu og auglýst að það gæti haft áhrif á gildi hennar. Landsvaka hafi því ekki verið skylt að innleysa skírteinin 6. október 2008 á síðasta útgefna gengi sjóðsins frá 3. október. Samkvæmt þessu var staðfest niðurstaða héraðsdóms um sýknu Landsvaka (Dómur Hæstaréttar frá 8.12.2011 nr. 152/2011).
Til bakaFréttasafn
- 16.01.2012 13:15Eignabréf - nýr fjárfestingarsjóður
- 11.01.2012 10:34Landsvaki með sjóð ársins - Sparibréf verðtryggð með 16,3% ávöxtun á árinu 2011
- 20.12.2011 16:08Jólakveðja frá starfsfólki Landsvaka
- 09.12.2011 14:34Jákvæður dómur fyrir Landsvaka í Hæstarétti
- 30.11.2011 16:36Tveir hagstæðir dómar fyrir Landsvaka
- 09.11.2011 10:36Útgreiðsla úr Fyrirtækjabréfum frestast til 10. janúar 2012
- 25.08.2011 16:07Árshlutareikningur Landsvaka hf. fyrir fyrri helming ársins 2011
- 21.06.2011 11:02Niðurstöður Aðalfundar