Frétt
Landsvaki með sjóð ársins - Sparibréf verðtryggð með 16,3% ávöxtun á árinu 2011
Skuldabréfasjóður Landsvaka, Sparibréf verðtryggð, náði hæstu ávöxtun verðbréfa- og fjárfestingarsjóða hér á landi á síðasta ári, samkvæmt hlutlausum samanburði á vefsíðunum keldan.is og sjodir.is. Sparibréf verðtryggð fjárfesta í meðallöngum og löngum verðtryggðum skuldabréfum með ábyrgð íslenska ríkisins. Ávöxtun sjóðsins á árinu var 16,31% sem verður að teljast mjög gott í því árferði sem nú ríkir. Ávöxtun skuldabréfasjóða á árinu var almennt góð.
Landsvaki býður viðskiptavinum sínum fjölbreytt úrval ríkisskuldabréfasjóða með ólíkan meðallíftíma. Í stystu sjóðunum, svo sem Reiðubréfum ríkistryggðum, er vaxtaáhætta lítil og því litlar sveiflur í ávöxtun. Í lengri sjóðum, svo sem Sparibréfum verðtryggðum, er vaxtaáhætta meiri og því von á meiri sveiflum í ávöxtun, en ávöxtun er að sama skapi að jafnaði hærri til lengri tíma litið. Einnig er hægt að velja milli ríkisskuldabréfasjóða sem fjárfesta eingöngu í verðtryggðum eða óverðtryggðum bréfum og blandaðra ríkisskuldabréfasjóða sem fjárfesta í hvoru tveggja.
Landsvaki leggur áherslu á að sjóðaúrval félagsins svari þörfum markaðarins hverju sinni. Þannig voru tveir áhugaverðir sjóðir stofnaðir undir lok ársins 2011 og eru þeir í sölu hjá Landsbankanum:
Eignabréf er fjárfestingarsjóður sem fjárfestir í dreifðu og blönduðu safni skuldabréfa og hlutabréfa, með grunn í verðbréfum með ábyrgð íslenska ríkisins. Eignabréf hafa einnig heimild til fjárfestingar í hlutdeildarskírteinum sjóða sem fjárfesta í verðbréfum sem rúmast innan fjárfestingarstefnu sjóðsins. Eignabréf henta vel fyrir langtímasparnað einstaklinga sem vilja setja hluta sparnaðar síns í áhættumeiri eignir. Til skamms tíma má búast við nokkrum sveiflum í ávöxtun sjóðsins en vænt ávöxtun er hærri en í ríkisskuldabréfasjóðum þegar til lengri tíma er litið.
Veltubréf er verðbréfasjóður sem fjárfestir aðallega í innlánum og ríkisvíxlum en sjóðurinn hefur einnig heimild til fjárfestinga í peningamarkaðsgerningum útgefnum af sveitarfélögum, bönkum og öðrum fyrirtækjum. Veltubréf er skammtímasjóður með fremur lítilli áhættu þegar horft er til vaxtaáhættu en áhættusamri fjárfestingastefnu þegar horft er til skuldaraáhættu sjóðsins. Þar sem sveiflur í ávöxtun eru litlar hentar sjóðurinn vel fyrir sparnað til skemmri tíma.
Við fjárfestingu í sjóðum er nauðsynlegt að hafa í huga að ávöxtun í fortíð segir ekki til um mögulega ávöxtun í framtíðinni og gengi sjóða getur bæði hækkað og lækkað.
Nánari upplýsingar um sjóði Landsvaka má finna á vefsíðu Landsvaka www.landsvaki.is/sjodir og á vefsíðu Landsbankans www.landsbankinn.is
Til bakaFréttasafn
- 16.01.2012 13:15Eignabréf - nýr fjárfestingarsjóður
- 11.01.2012 10:34Landsvaki með sjóð ársins - Sparibréf verðtryggð með 16,3% ávöxtun á árinu 2011
- 20.12.2011 16:08Jólakveðja frá starfsfólki Landsvaka
- 09.12.2011 14:34Jákvæður dómur fyrir Landsvaka í Hæstarétti
- 30.11.2011 16:36Tveir hagstæðir dómar fyrir Landsvaka
- 09.11.2011 10:36Útgreiðsla úr Fyrirtækjabréfum frestast til 10. janúar 2012
- 25.08.2011 16:07Árshlutareikningur Landsvaka hf. fyrir fyrri helming ársins 2011
- 21.06.2011 11:02Niðurstöður Aðalfundar