Um Landsvaka

Rekstrarfélagið Landsvaki hf. er sjálfstætt starfandi fjármálafyrirtæki sem rekur verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði. Landsvaki starfar á grundvelli laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002 og laga um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði nr. 128/2011. Samkvæmt lögunum ber að starfrækja verðbréfa- og fjárfestingarsjóði í sérstöku fjármálafyrirtæki sem kallast rekstrarfélag. Rekstrarfélög eru starfsleyfisskyld og lúta eftirliti Fjármálaeftirlitsins.

Landsvaki var stofnaður árið 1994 sem dótturfélag Landsbréfa hf., sem fékkst við eignastýringu og verðbréfaviðskipti einstaklinga. Landsbréf starfræktu á sínum tíma tvo verðbréfasjóði, Landssjóð og Landssjóð II. Í eldri lögum um verðbréfasjóði, nr. 10/1993, var kveðið á um að sérstakt félag annaðist rekstur verðbréfasjóða og var Landsvaki stofnaður í því skyni.

Landsbréf sameinuðust gamla Landsbankanum árið 2001 og þar með varð Landsvaki dótturfélag bankans. Haustið 2008 varð Landsvaki dótturfélag Landsbankans. Landsvaki er nú nær alfarið (99,99%) í eigu Eignarhaldsfélags Landsbankans ehf., kt. 530407-1790, og er eignarhaldsfélagið eini eigandinn sem á meira en 5% hlut í félaginu, sbr. 4. mgr. 19. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Landsvaki hf. er óháður Landsbankanum, til að mynda er starfsemi félagsins í aðskildu húsnæði og meirihluti stjórnarmanna Landsvaka ótengdur Landsbankanum. Landsvaki útvistar þó hluta af rekstri sínum til Landsbankans, svo sem ráðgjöf og vörslu.

Framkvæmdastjóri félagsins er Ari Skúlason.

StjórnarhættirStjórn  |  StarfsmennSamþykktir  |  Lög og reglugerðir  |  Ársreikningar  |  Söluaðilar  |  Hafa samband

Nánar um Landsvaka

  • Landsvaki hf.
  • Hafnarstræti 5
  • 155 Reykjavík

Hafðu samband